1.0 Tilgangur og umfang
Jafnlaunastjórnunarkerfi nær til alls starfsfólks. Starfsmaður er sá sem hefur gildandi ráðningarsamband við SORPU bs. Kerfið nær ekki til verktaka né þeirra sem vinna tímavinnu.
2.0 Jafnlaunastefna
Samkvæmt lögum nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna mun SORPA bs. tryggja öllu starfsfólki sínu þau réttindi varðandi launajafnrétti sem kveðið er á um í lögunum. Laun skulu ákvörðuð í samræmi við kröfur starfa óháð kyni og störf skulu taka mið af þeim kröfum sem þau gera. Kjarasamningar skulu vera forsenda launaákvarðana og tryggi að sömu laun og sömu kjör séu fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf. Starfsfólki skal ekki mismunað á grundvelli ólíkra kjarasamninga.
Til þess að fylgja jafnlaunastefnu eftir skuldbindur SORPA sig til að:
- Skjalfesta og viðhalda jafnlaunastjórnunarkerfi með stöðugum umbótum, eftirliti og viðbrögðum í samræmi við kröfur staðalsins ÍST 85 auk þess að stuðla að forvörum á kerfinu
- Viðhalda vottun í samræmi við gildandi lagareglur á hverjum tíma og bregðast við frábrigðum og athugasemdum þegar þau koma upp
- Flokka störf út frá þeim kröfum sem þau gera og framkvæma árlega launagreiningu þar sem borin eru saman sömu eða jafnverðmæt störf og til að athuga hvort óútskýrður kynbundinn launamunur sé til staðar
- Kynna fyrir starfsfólki niðurstöður árlegrar launagreiningar sem er til úttektar nema persónuverndarhagsmunir mæli gegn því
- Fylgja viðeigandi lögum, reglum og kjarasamningum sem í gildi eru á hverjum tíma og staðfesta árlega hlítni við lög
- Framkvæma innri úttekt á öllum útgefnum skjölum sem tilheyra jafnlaunastjórnunarkerfi eigi sjaldnar en á þriggja ára fresti
- Framkvæma rýni stjórnenda árlega þar sem jafnlaunamarkmið eru sett fram og rýnd
- Hafa jafnlaunastefnu aðgengilega á ytri vef og skal hún vera kynnt árlega fyrir starfsfólki og við nýráðningu starfsfólks
- Viðhalda gildri jafnréttisáætlun SORPU í samræmi við lög og uppfæra á þriggja ára fresti
Jafnlaunastefna er jafnframt launastefna. Mannauðsstjóri er fulltrúi jafnlaunastjórnunarkerfis og skal starfsfólk leita til hans með athugasemdir eða fyrirspurnir.
Stefna þessi var samþykkt til útgáfu þann 7. janúar 2025.