Öryggi og gæði

Gildi SORPU, sem eru leiðarljós starfsmanna fyrirtækisins, voru ákvörðuð af öllum starfsmönnum árið 2015 á vinnustofu þar um. Gildi SORPU eru frumkvæði, traust og samheldni.

Fimm yfirmarkmið hafa verið sett fram hjá SORPU og taka þau mið af stefnum fyrirtækisins. Starfsstöðvar setja sér mælanleg markmið og aðgerðir í takt við yfirmarkmið fyrirtækisins sem eru:

  • Lágmörkun á losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun SORPU
  • Lágmörkun úrgangs og aukið endurnýtingarhlutfall
  • Aukin þjónustugæði við viðskiptavini
  • Jafnrétti og vellíðan starfsmanna
  • Upplýsingaöryggi

SORPA er aðili að loftslagsyfirlýsingu fyrirtækja og Reykjavíkurborgar, sem Festa – miðstöð um samfélagsábyrgð, stendur fyrir.

Hér má sjá stefnur SORPU

Vöktun umhverfisþátta

Þýðingarmiklir umhverfisþættir hafa verið skilgreindir fyrir SORPU í heild og eru svo nánar útfærðir fyrir hverja starfsstöð ásamt upplýsingum um vöktun og stýringu þeirra. Þannig eru stöðugar umbætur í umhverfis- og gæðamálum tryggðar og lögð áhersla á að lágmarka umhverfisáhrif fyrirtækisins. Í ársskýrslum SORPU má finna niðurstöður umhverfisvöktunar SORPU og grænt bókhald fyrirtækisins. 

Stjórnkerfi

Stjórnkerfi SORPU er vottað samkvæmt ISO 9001 gæðastaðlinum, ISO 14001 umhverfisstaðli, ISO 45001 heilbrigðis- og öryggisstaðli og ÍST 85 jafnlaunastaðli. Framleiðsluvara SORPU, vistvæna eldsneytið metan, er vottað með norræna umhverfismerkinu Svaninum og gashreinsistöð SORPU er ATEX-vottuð samkvæmt kröfum í reglugerð um sprengifimt andrúmsloft á vinnustöðum (Atex User Directive). 

Vottanir og stefnur

Versa vottun hefur vottað samþætt stjórnkerfi SORPU samkvæmt fjórum li data-block-key="398o5">ISO 9001 um gæði þjónustunnar sem SORPA veitir og gæði varanna sem SORPA framleiðir

  • ISO 14001 um stjórnun umhverfisáhrifa af starfsemi SORPU
  • ISO 45001 um heilbrigði og öryggi fólks sem kemur að starfsemi SORPU (þ.m.t. starfsfólk, verktakar og viðskiptavinir)
  • ÍST 85 um jöfn laun starfsfólks SORPU fyrir jafnverðmæt störf
  • Vottunarmerki Versa vottunar hafa tilvísun í Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, því litirnir í þeim vísa til þeirra heimsmarkmiða sem SORPA hefur valið að eigi best við starfsemi sína.  Sjá nánar í krækju í heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna hér að ofan.

    • ISO 9001 vísar til heimsmarkmiðs nr. 9 Nýsköpun og uppbygging
    • ISO 14001 vísar til heimsmarkmiðs nr. 12 Ábyrg neysla og framleiðsla
    • ISO 45001 vísar til heimsmarkmiðs nr. 3 Heilsa og vellíðan
    • ÍST 85 vísar til heimsmarkmiðs nr. 5 Jafnrétti kynjanna.

    Persónuvernd

    Öll meðferð SORPU á persónuupplýsingum lýtur lögum um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglum sem settar eru samkvæmt þeim. Persónuverndarfulltrúi SORPU hefur umsjón með eftirfylgni við persónuverndarstefnu SORPU og framfylgni við persónuverndarlög. Hægt er að hafa samband við persónuvernarfulltrúa SORPU með því að senda honum tölvupóst á netfangið personuvernd@sorpa.is.

    Velferð samfélagsins

    SORPA hefur í gegnum tíðina haft frumkvæði að fjölmörgum verkefnum sem snúa að velferð samfélagsins, m.a. betri nýtingu náttúruauðlinda. Rekstur Góða hirðisins, nytjamarkaðar SORPU, er nærtækasta dæmið um slíkt verkefni þar sem gamlir munir og húsbúnaður fá nýtt líf í höndum nýrra eigenda og ágóðinn rennur til góðgerðarmála. Þá opnaði Efnismiðlun Góða hirðisins á árinu 2018 en þar fá byggingarefni og ýmis efni tengd listsköpun farveg. Markmiðið að auka endurnotkun á slíkum efnum og koma til móts við eftirspurn frá almenningi eftir slíkri þjónustu.

    Aukin áhersla er á gagnsæi í ákvarðanatöku hjá SORPU og hafa fundargögn stjórnar verið birt opinberlega á vef SORPU með viðkomandi fundargerðum. Almenningur hefur því betri möguleika en áður á að átta sig á forsendum ákvarðana stjórnar.