Chat with us, powered by LiveChat
11. apríl 2022

SORPA tekur tímabundið við eftirliti og umsjón með Bolaöldum

SORPA tók þann 1. apríl við eftirliti og umsjón með Bolaöldum til tveggja mánaða. Í Bolaöldum er eingöngu heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni s.s. mold, möl og grjót.

Tekið er á móti óvirkum jarðefnum mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–12:00 og 12:30-17:00 og á föstudögum kl. 8:00–12:00 og 12:30–16:00.

Svæðið er staðsett í Bolaöldum í hlíðum Vífilsfells í landi Ölfuss. Þar er námusvæði og með móttöku á jarðefnum er verið að endurheimta land í eldri námum. Ekið er að námusvæðinu frá Suðurlandsvegi til suðurs rétt vestan við Litlu-Kaffistofuna.

Hvað má losa?
Eingöngu er heimilt að losa endurnýtanlegt, óvirkt jarðefni s.s. mold, möl og grjót. Einnig má losa steinsteypubrot sem búið er að klippa af öll útistandandi járn og hreinsa af öðrum efnum s.s. einangrun, pappa og klæðningu.

Ekki er heimilt að losa lífrænan úrgang eins og húsdýraskít og landbúnaðarhrat, eins og það er orðað í starfsleyfi.

Skv. reglugerð 737/2003 um meðhöndlun úrgangs er lífrænn úrgangur auk þess skilgreindur sem ,,úrgangur sem er niðurbrjótanlegur af örverum með eða án tilkomu súrefnis, t.d. matarleifar, garðúrgangur (gras og tré), sláturúrgangur, fiskúrgangur, ölgerðarhrat, húsdýraúrgangur, timbur, lýsi, garðyrkjuúrgangur, pappír og pappi, og seyra.”

Nýjustu fréttir