12. desember 2024

Endurvinnslustöð lokar á Dalvegi í Kópavogi

Endurvinnslustöð SORPU á Dalvegi 1 í Kópavogi mun loka í september næstkomandi vegna skipulagsbreytinga í Kópavogsdal. Tillaga liggur fyrir um nýja endurvinnslustöð sem byggð yrði á Glaðheimasvæðinu á næstu tveimur til fjórum árum.

„Við í Kópavogi fögnum þessari niðurstöðu. Lykilatriði hjá okkur var að ný stöð yrði vel staðsett með góða tengingu við meginstofnvegi. Stöðin verður ívið stærri en sú á Dalveginum og yfirbyggð þannig að hún falli sem best inn í umhverfið. Við teljum að hér sé um að ræða góða lausn sem mun þjóna vel íbúum okkar og nærliggjandi sveitarfélögum,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Í árslok 2023 setti stjórn SORPU á fót starfshóp um staðarval fyrir nýja endurvinnslustöð í Kópavogi eða Garðabæ. Þegar hópurinn hóf vinnu sína stóð til að loka endurvinnslustöð SORPU á Dalvegi 1 í september 2024, en því hefur nú verið seinkað til 1. september 2025. Hópurinn hafði meðal annars það hlutverk að greina þörf fyrir stærð og hlutverk nýrrar endurvinnslustöðvar, umferð, og áhrif á nærumhverfi íbúa, fyrirtæki og útivist. Eins voru greindar út frá tímalínu nauðsynlegar skipulagsbreytingar og breytingar á vegakerfi, sem og hönnun stöðvarinnar. Jafnframt var lögð áhersla á að hægt verði að mynda skjól fyrir veðri á nýjum stað.

Tillaga starfshópsins var gerð opinber á fundi bæjarráðs Kópavogs þann 12. desember 2024 og varð Glaðheimasvæðið fyrir valinu sem ákjósanlegasti staðurinn. Lóð stöðvarinnar mun afmarkast af Arnarnesvegi og Reykjanesbraut. Þessi staðsetning var meðal annars valin vegna stærðar lóðarinnar, legu í landi, fjarlægðar frá öðrum endurvinnslustöðvum, skipulags nærliggjandi byggðar, og því að aðkoma að henni verður greið fyrir íbúa Kópavogs og Garðabæjar.

Stöðin verður ætluð heimilum og áhersla lögð á að áhrif á byggð í nágrenninu verði sem minnst, til dæmis með góðri hönnun á yfirbyggingu stöðvarinnar og með því að takmarka stærð hennar. Opnununartími mun taka mið af nærumhverfinu og gott flæði umferðar að og frá stöðinni verður tryggt.

Þar til nýja stöðin opnar eru íbúar hvattir til að nýta sér endurvinnslustöð SORPU við Breiðhellu í Hafnarfirði.

Loftmynd af svæðinu þar sem fyrirhugað er að ný endurvinnslustöð SORPU rísi. Svæðið afmarkast af Arnarnesvegi og Reykjanesbraut.

Frumdrög að útliti nýrri endurvinnslustöð SORPU á Glaðheimasvæðinu. Gert er ráð fyrir að stöðin opni eftir tvö til fjögur ár. Mynd: Nordic Office of Architecture.

Nýjustu fréttir