Í flokkinn fer prent- og ljósritunarpappír sem ekki ber úrvinnslugjald. Einnig hvítur afskurður frá prentsmiðjum o.þ.h. Hefti og smærri gormar mega fara með.
Ekki er tekið á móti trúnaðarskjölum sérstaklega til eyðingar en skjöl og tætt skjöl mega fara með blönduðum pappír eða skrifstofupappír. Fjarlægja ber aðskotahluti, t.d. plast, sem rýrir endurvinnslugildi efnisins.

Efnið er pressað og baggað í móttöku-og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi til að draga úr rúmmáli. Það er síðan flutt til STENA í Svíþjóð til frekari flokkunar, flokkunin samanstendur af bylgjupappa, sléttum pappír/dagblöðum og fernum/rakaþolnum pappaumbúðum sem fer svo til sértækrar endurvinnslu. Eftir flokkunina sendir STENA fernurnar til Fiskeby þar sem fernurnar eru endurunnar.