Umhverfisskýrsla SORPU 2021
Umhverfisskýrsla SORPU, grænt bókhald, fyrir árið 2021 er nú aðgengileg á vefnum. Í skýrslunni er fjallað um niðurstöður umhverfisbókhalds SORPU, s.s. notkun hráefna í starfseminni, orku- og vatnsnotkun, eldsneytisnotkun og fleira. Einnig er fjallað um kolefnisspor SORPU og þau verkefni sem farið var í á árinu til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá starfseminni.
Helstu niðurstöður
- Heildarúrgangsmagn sem móttekið var hjá SORPU árið 2021 dróst saman um 6,2% frá fyrra ári og var alls tekið við 198.936 tonnum.
- Endurnýtingarhlutfall úrgangs var 57,0%.
- Í heildina dróst áætluð losun gróðurhúsalofttegunda vegna starfseminnar saman um rúmlega 6.300 tonn CO2-ígilda. Er það fyrst og fremst að þakka minni urðun lífúrgangs til samanburðar við fyrra ár.
Meira rusl
Lokað fyrir móttöku garðaúrgangs á gamla Gustssvæðinu
05. ágúst 2022Búið er að loka fyrir móttöku á garðaúrgangi á gamla Gustssvæðinu í Kópavogi. Starfsmenn endurvinnslustöðva...
Breytingar á gjaldskrá 15. júlí
01. júlí 2022...