Endurvinnslan hf. er með móttöku fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir á fjórum endurvinnslustöðvum SORPU.
Í Ánanaustum, Breiðhellu og Jafnaseli er vélræn flokkun og talning. Ekki þarf að flokka umbúðir eftir tegund né telja þær en umbúðir þurfa hins vegar að vera óbeyglaðar svo að flokkunarvélin þekki þær.
Í Blíðubakka þurfa umbúðir að vera flokkaðar eftir tegund og taldar, en þær mega vera beyglaðar. Leyfilegt er að koma með hámark 1.000 einingar í hverri afgreiðslu.
Á öllum endurvinnslustöðvum SORPU eru Grænir skátar með gáma fyrir skilagjaldsskyldar umbúðir og fer þá ágóðinn í styrktarsjóð þeirra.

Endurvinnslan hf. tekur við skilagjaldsskyldum umbúðum sem berast til SORPU og baggar áldósir og plastumbúðir í pressum. Umbúðirnar eru svo fluttar erlendis til endurvinnslu. Framleiðsla úr endurunnum áldósum eru t.d. nýjar áldósir og úr gömlu plastflöskunum er framleidd polyester ull – efni sem nýtist í fataiðnaði, teppaframleiðslu o.fl. Flísföt eru þekktasta afurðin.