Í flokkinn fara trjábolir og rætur án aðskotahluta. Athugið að efnið skal losa úr plastpokum.
Í flokkinn fara trjábolir og rætur án aðskotahluta. Athugið að efnið skal losa úr plastpokum.
Það er líka tekið við trjábolum og rótum í móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi og á urðunarstað í Álfsnesi.
Efnið nýtist sem stoðefni í jarðgerð í GAJA, gas- og jarðgerðarstöð SORPU í Álfsnesi. Stoðefnin hafa mikilvægu hlutverki að gegna í vinnsluferli lífræns eldhússúrgangs, s.s. að greiða leið meltuvökva í gegnum úrganginn, viðhalda raka, tryggja loftun í jarðgerðarferlinu og sjá lífrænum ferlum fyrir kolefni. Frásigtuð stoðefni eru endurnýtt.