Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(23:20 24/5)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: SV 7,9 m/s
Hitastig: 6,44 °C

Grenndargámar

Grenndarstöð.

Grenndarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru um 80 talsins, staðsetning grenndargáma í hverju sveitafélagi fyrir sig má sjá hér til hliðar.
Sjá staðsetningar á höfuðborgarsvæðinu á korti hér. Á hverri stöð eru tveir gámar. Í þá má setja flokkaðan úrgang, annars vegar er blár gámur sem að tekur við pappír og sléttum pappa og grænn gámur sem tekur við plastumbúðum. Sjá myndband

Pappír og sléttur pappi er endurvinnanlegur pappi og pappír, svo sem dagblöð, tímarit, auglýsingapóstur, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakkar, eggjabakkar og pakkningar utan af matvælum s.s kexi og pasta. Svo ekki komi ólykt við geymslu skal skola fernurnar vel áður en þeim er skilað. Mikilvægt er að fjarlægja allar matarleifar eða plastumbúðir sem kunna að leynast í pappaumbúðum. Losið því blöðin úr plastpokum eða öðrum umbúðum og setjið þau í lausu í gáminn.Pressið umbúðirnar vel saman - það kostar að flytja loft.  Pappír og umbúðir úr sléttum pappa fara í bláa grenndargáma. Sjá myndband

Plastumbúðir: flokka skal allar umbúðir sem ekki bera skilagjald, s.s. sjampóbrúsa, tómatsósuflöskur, plastbakka undan ýmsum matvörum, plastpoka ýmiskonar, plastílát undan mjólkurdrykkjum, jógúrtdósir, plastílát undan hreinsiefnum o.fl. Umbúðir skulu vera tómar, án allra aðskotahluta, s.s. matar- eða efnaleifa. Gott er að stafla umbúðum saman eða rúmmáls minnka á annan hátt til þess að nýta plássið sem best. Það kostar að flytja loft. Athugið að ekki er hægt að flokka frauðplast til endurvinnslu! Plastumbúðir fara í græna grenndargáma.

Hráefni í nýjar vörur
Allur flokkaður pappírs- og pappaúrgangur endar í móttökustöð SORPU í Gufunesi. Hann er síðan sendur til Svíþjóðar þar sem hann er endurunninn í margvíslegar afurðir, s.s. eldhúspappír, salernispappír o.fl. Umbúðir úr sléttum pappa eru sendar til endurvinnslu til Fiskeby Board í Svíþjóð. Úr hverjum fimm kössum er hægt að búa til fjóra nýja.  Plastumbúðirnar eru ýmist nýttar til orkuvinnslu eða til endurnýtingar bæði hérlendis og erlendis.


Verðmætt hráefni er endurnýtt

  • Dregið er úr því landi sem leggja þarf undir sorpurðun.
  • Vönduð flokkun er lykilatriði.
  • Endurvinnsla úrgangsins er ódýrari fyrir samfélagið heldur en urðun.

Skoða myndbönd sem sýna endurvinnslu á fernum og dagblöðum.

Staðsetning grenndargáma og endurvinnslukort á natturan.is

Góð flokkun er forsenda endurvinnslu