Þetta er ekkert mál

Flokkunarsetur SORPU

Hér finnur þú helstu upplýsingar um hvernig á að flokka. Þú getur slegið inn helstu tegundir af rusli og fengið svar við hvað á að gera við það. Ef þú finnur ekki svar, þá fáum við tilkynningu um það og komum svari við spurningu þinni fljótt og örugglega í leitarvélina okkar.

Snjallar grenndarstöðvar

Við vinnum hörðum höndum að breyta og bæta grenndarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Merkingar hafa verið uppfærðar og snjallskynjarar settir í gáma til bæta þjónustu og tryggja tímanlega losun.

Ef þú ert með ábendingu eða vilt koma einhverju á framfæri varðandi grenndarstöðvar endilega sendu okkur línu á samfélagsmiðlum eða á sorpa@sorpa.is

Nú er stöðvum skipt í tvo flokka:

Litlar grenndarstöðvar

Þær taka á móti gleri, málmumbúðum og skilagjaldsskyldum flöskum og dósum. Þessar stöðvar eru í mörgum tilvikum ný viðbót og eru í nærumhverfi allra í þéttbýli.

Grendarstod-litil

Stórar grenndarstöðvar

Taka á móti pappír og pappa, plastumbúðum, gleri, málmumbúðum, textíl og skilagjaldsskyldum flöskum og dósum. Þessar stöðvar eru aðgengilegar íbúum í flestum hverfum svo íbúar geti losað sig við plast, pappír og pappa sem fellur óreglulega til eins og t.d. um jól.

grenndarstod-stor

Fjórflokkarnir heima

Heimili flokka fjóra úrgangsflokka í tunnur við heimili; pappír og pappa, plastumbúðir, matarleifar og blandaðan úrgang. Málmumbúðum, glerumbúðum og textíl, bæði notuðum og ónothæfum er sérsafnað á þá grenndarstöð sem er næst þér. Stærri hlutir og enn fleiri flokkar fara á Endurvinnslustöðvar Sorpu.

Pappír og pappi
Plastumbúðir
Matarleifar
Blandaður úrgangur

Flokkum matarleifar!

Matarleifum skal safnað í bréfpoka. Matarleifar eru flokkaðar sér en áður fóru þær saman með blönduðum úrgangi.

Söfnun á matarleifum eða lífrænum úrgangi er stórt skref í átt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Úr matarleifum sem safnast við heimili er framleitt metangas og molta eða jarðvegsbætir. Metangas nýtist meðal annars sem bifreiðaeldsneyti og molta nýtist til landgræðslu

Karfan undir bréfpokana passar auðveldlega í flokkunarhirslur eldhúsinnréttinga. Körfur er hægt að nálgast hjá Sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins og á Endurvinnslustöðvum Sorpu.

Bréfpokar hafa reynst mjög vel á Norðurlöndunum og skipta lykilmáli til að hægt sé að vinna nothæfa moltu úr matarleifunum. Pokarnir eru settir í körfu sem tryggir að það lofti um pokann sem kemur í veg fyrir mögulegan leka.

Poka er hægt að fá endurgjaldslaust á Endurvinnslustöðvum SORPU og í Góða hirðinum, nytjamarkað SORPU. Einnig hafa verslanir Bónus, Hagkaupa og Krónunar hafið sölu á bréfpokum sem henta undir matarleifar fyrir heimili.

Hvernig tunnur henta mér best?

Almennt fyrirkomulag við sérbýli eru þrjár tunnur, sem hentar flestum heimilum*

Fyrirkomulag við sérbýli er:

Ein tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang
Ein tunna fyrir pappa og pappír
Ein tunna fyrir plastumbúðir


Tvískiptu tunnurnar eru tæmdar í bíla sem eru sérhannaðir með það huga að úrgangsflokkarnir blandist ekki.

*Fyrir sérlausnir, eins og fleiri eða færri tunnur, skulu íbúar hafa samband við sitt sveitarfélag. Hafa ber í huga að öll heimili skulu flokka í fjóra flokka, óháð fjölda tunna. 

Tvískipt tunna fyrir matarleifar og blandaðan úrgang, auk plast- og pappírstunnu

Fyrirkomulag við fjölbýli

Mismunandi fyrirkomulag er við fjölbýli og fer útfærsla eftir aðstæðum hverju sinni.

Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og er leitast við að halda rúmmáli tunna óbreyttu, þ.e að koma þeim fyrir í rýmum sem eru til staðar.

Hér að neðan er hægt er að sjá mögulegar útfærslur þar sem annars vegar eru fjórar tunnur og annarsvegar kör með tunnum.

Tegund Hæð Breidd Dýpt
140 lítra 1100 mm 505 mm 555 mm
240 lítra 1169 mm 580 mm 724 mm
360 lítra 1150 mm 590 mm 880 mm
660 lítra 1225 mm 1255 mm 775 mm

240 lítra tunna er algengasta stærðin t.d. fyrir tvískiptar tunnur og matarleifar og blandaðan úrgang.

Hvernig flokka ég?

Í glugganum hér fyrir ofan er hægt að slá inn algengustu úrgangstegundir og fá upplýsingar um hvernig á að flokka þær.

Hér fyrir neðan er hægt að sækja plaköt með upplýsingar um flokkun og hvernig tunnurnar líta út í Reykjavík og í öðrum sveitarfélögum.

Pappír og pappi

í tunnuna fer meðal annars:

  • Dagblöð
  • Bréfpokar
  • Pítsakassar
  • Pappírsumbúðir

Plastumbúðir

í tunnuna fer meðal annars:

  • Snakkpokar
  • Plastfilma
  • Plastpokar
  • Sjampóbrúsar

Matarleifar

í tunnuna fer meðal annars:

  • Eggjaskurn
  • Matarleifar með beini
  • Kaffikorgur
  • Fiskiúrgangur
  • Afskorin blóm

Blandaður úrgangur

í tunnuna fer meðal annars:

  • Dömubindi
  • Blautklútar
  • Bleyjur
  • Ryksugupokar

Spurt og svarað um nýtt flokkunarkerfi

Hvernig virkar fyrirkomulagið?

  • Hvernig tunnur verða hjá mér?

    Tunnum fyrir fjóra flokka verður komið fyrir við íbúðarhús eftir þörfum. Meginmarkmiðið er að fjölga tunnum hjá íbúum eins lítið og hægt er og í flestum tilfellum verður leitast við að koma tunnum fyrir í því rými sem er þegar til staðar við íbúðarhús. Í hinu nýja kerfi verða því að jafnaði tvær til  þrjár tunnur við sérbýli en í fjölbýlishúsum fer útfærsla eftir aðstæðum á hverjum stað. Nánari útfærslur í hverju sveitarfélagi verða kynntar síðar. 

  • Hversu mikið pláss taka tvískiptu tunnurnar?

    Tvískiptu tunnurnar er jafn stórar og hinar hefðbundnu 240 lítra tunnur. Eina breytingin er að þær eru með sitthvort hólfið og lokin opnast til hliðar í staðinn fyrir á móti þeim sem stendur fyrir framan tunnuna.

  • Verða tvískiptar tunnur líka í sorpgeymslum fjölbýlishúsa?

    Nei, almennt má gera ráð fyrir því tvískiptar tunnur verði ekki sorpgeymslum fjölbýlishúsa. Tunnusamsetning í fjölbýlishúsum getur orðið á ýmsan hátt allt eftir aðstæðum á hverjum og einum stað.

  • Hvað geri ég ef pappa- eða plast hólfið í tvískiptri tunnu fyllist?

    Þá getur þú annað hvort farið með pappann eða plastið á stærri grenndarstöðvar sem verða staðsettar með um 1000 metra millibili á höfuðborgarsvæðinu, eða óskað eftir að tvískipta tunnan verði fjarlægð og fengið tvær 240 lítra tunnur í staðinn. Það þýðir þá að þú hafir þrjár tunnur í heildina og þurfir að stækka tunnuskýlið sem því nemur.

  • Ég þarf að búa til nýtt tunnuskýli heima hjá mér. Hvað þarf ég að hafa í huga?

    Best er að hafa samband við sveitarfélagið þar sem þú býrð til að fá nánari upplýsingar. En almennt er best að koma tunnuskýlunum fyrir sem næst götu svo starfsfólk sorphirðunnar þurfi ekki að sækja tunnur langt inn fyrir lóðarmörk.

  • Hvernig bílar eru notaðir til að tæma tvískiptar tunnur?

    Til að tæma tvískiptar tunnur verða notaðir bílar með tveimur hólfum. Flokkaður úrgangur, t.d. matarleifar og blandaður úrgangur, fer þá í sitthvort hólfið.

  • Hversu oft eru tunnurnar tæmdar?

    Til að fá nánari upplýsingar er hægt að hafa samband við sitt sveitarfélag.

  • Get ég breytt fyrirkomulagi á tunnum hjá mér?

    Ef fyrirkomulag hentar ekki þá er hægt að hafa samband við þitt sveitarfélag til að athuga hvaða möguleikar eru í stöðunni.

  • Hvernig verða tunnurnar merktar?

    Allar tunnur verða merktar með nýjum merkingum í samræmi við reglur Fenúr (Fagráðs um endurnýtingu og úrgang). Merkingarnar byggja á samræmdu norrænu merkingakerfi.

  • Hvað verður gert þar sem eru djúpgámar?

    Mismunandi fyrirkomulag er á djúpgámum. Hægt er að hafa samband við sitt sveitarfélag til að fá meiri upplýsingar um djúpgáma.

Afhverju erum við að þessu?

  • Af hverju er verið að fara í þessar breytingar?

    Almenningur hefur lengi kallað eftir sérsöfnun á lífrænum úrgangi og samræmingu á flokkunarkerfi við heimili á höfuðborgarsvæðinu. Þetta felur í sér betri þjónustu við íbúa á öllu höfuðborgarsvæðinu - eitt kerfi, einar reglur.

    Nýja kerfið byggir á lögum sem tóku gildi árið 2023 og fela í sér betri meðhöndlun á úrgangi en hætta þarf að urða lífrænan úrgang.

  • Hvað þýða þessar breytingar fyrir umhverfið?

    Nýtt kerfi gerir okkur kleift að flokka enn betur því það er mikilvægt að halda auðlindum innan hringrásarhagkerfisins. Því betur sem við flokkum úrganginn okkar, því meiri líkur eru á að hægt sé að endurvinna hann.

  • Hvað á ég að gera við málma og gler?

    Þessum flokkum þarf hver og einn að skila á grenndargámastöðvar sem eru staðsettar í öllum hverfum í þéttbýli. Ekki má setja málmumbúðir lausar með blönduðum úrgang.

  • Verður breyting á grenndargámum?

    Já, samhliða breytingu á tunnum við heimili verður breyting á grenndarstöðvum. Þær munu skiptast í tvo flokka:

    Litlar grenndarstöðvar

    Þær taka á móti gleri, málmumbúðum og flöskum og dósum. Þessar stöðvar eru í mörgum tilvikum ný viðbót og verða í nærumhverfi allra í þéttbýli.

    Stórar grenndarstöðvar

    Þær taka á móti pappír og pappa, plastumbúðum, gleri, málmumbúðum, textíl, skilagjaldsskyldum flöskum og dósum. Þessar stöðvar verða aðgengilegar íbúum í flestum hverfum svo íbúar geti losað sig við plast, og pappír og pappa sem fellur óreglulega til eins og t.d. um jól.

Spurt og svarað um matarleifar

  • Hvernig safna ég matarleifum og hvernig poka á ég að nota?

    Matarleifum á að vera safnað í bréfpoka sem brotna auðveldlega niður og festast ekki í vélbúnaði móttökustöðva SORPU. Hægt er að fá bréfpoka á Endurvinnslustöðvum Sorpu og Góða Hirðinum, án endurgjalds. Hægt er að fá ílát til að safna matarleifum hjá sveitafélögum höfuðborgarsvæðisins eða á endurvinnslustöðvum SORPU.

  • Munu bréfpokar ekki leka?

    Söfnun á matarleifum kallar að hluta til á breyttar venjur. Þær munu meðal annars fela í sér að passa að blautar matarleifar fara ekki í bréfpokana eða þá að farið sé reglulega með þá út í tunnu. Ef mjög blautar matarleifar fara í pokana verður hægt að setja eldhúspappír í botn þeirra.

  • Hvar nálgast ég fleiri poka og hvað munu þeir kosta?

    Hægt er að nálgast bréfpoka fyrir matarleifar heimila á næstu Endurvinnslustöð SORPU og Góða hirðinum, án endurgjalds. Einnig eru pokarnir til sölu í matvöruverslunum Bónus, Hagkaupa og Krónunnar.

  • Af hverju þarf að flokka matarleifar?

    Söfnun á matarleifum eða lífrænum úrgangi er stórt skref í átt að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Úr lífrænum úrgangi sem safnast við heimili er framleitt metangas og molta eða jarðvegsbætir. Metangas nýtist meðal annars sem bifreiðaeldsneyti og molta nýtist til landgræðslu.

  • Munu matarleifar ekki lykta illa í tunnunni?

    Ef það er ekki koma ólykt úr almennu tunnunni núna þá mun ekki koma ólykt úr lífrænu tunnunni eftir breytingar. Samsetning úrgangsins mun ekki breytast heldur mun úrgangurinn bara vera í sitthvorri tunnunni en ekki blandaður saman eins og áður.

  • Þarf ég að fá tunnu fyrir matarleifar ef ég er með heimamoltugerð?

    Já, það verður skylda fyrir öll heimili að hafa fjóra flokka fyrir úrgang. Auk þess er ýmislegt lífrænt sem fellur til í eldhúsinu sem hentar ekki til heimajarðgerðar.

  • Hversu stórar eru körfurnar fyrir matarleifar?

    Körfurnar eða ílátin fyrir matarleifar sem verða inni á heimilum eru að stærðinni 247mm x 197mm x 280mm (L x B x H).

    matarleifar_karfa

  • Má ég setja matarleifar beint í tunnuna í engum poka?

    Já, SORPA gerir ekki athugasemdir við að setja matarleifar í tunnuna í engum poka. Tunnan verður hins vegar óhreinni við það svo við mælum með því að nota bréfpoka.

Samvinna sveitafélagana

Þú færð allar nánari upplýsingar um samræmt flokkunarkerfi í þínu sveitarfélagi á heimasíðum sveitarfélaganna hér að neðan.