09. ágúst 2012
Þjónustukönnun á endurvinnslustöðvum
Undanfarnar vikur hefur verið í gangi þjónustukönnun á endurvinnslustöðvum SORPU.
Á stöðvunum hefur sérstakur starfsmaður óskað eftir við viðskiptavini að svara fimm spurningum, þar sem m.a. var spurt um ánægju fólks með þjónustuna á tiltekinni endurvinnslustöð og hverslags úrgang fólk var að koma með.
Úrtakið var 2.998 manns og almennt tók fólk vel í þetta og var viljugt að svara. Þökkum við viðskiptavinum okkar fyrir samvinnuna.
Könnunin er gerð á vegum SORPU og er að vænta niðurstöðu á næstu vikum.
Má þess geta að í júlí voru yfir 80.000 heimsóknir á endurvinnslustöðvar SORPU.













