Góði hirðirinn - styrkumsókn
Góði hirðirinn-aðalsíða
(20:30 19/6)Veður

Urðunarstaður SORPU
í Álfsnesi

Vindur: SA 1,4 m/s
Hitastig: 13,85 °C
24. júlí 2012

Tryggja þarf rekstraröryggi, gæði og framleiðslugetu til að anna eftirspurn metans

Um áramótin gátu tæplega 1000 bílar nýtt metan unnið úr hauggasi sem sogað er upp úr ruslahaugnum í Álfsnesi og hreinsað í ökutækjaeldsneyti.  Nú eru bílarnir um 1200.  Ekki þarf að fjölyrða um gildi þess að nota metan á ökutæki, eins og sjá má á heimasíðunni www.metan.is.

 
Sala á metani stefnir í að tvöfaldast á árinu 2012 miðað við árið 2011 og verða yfir 2 milljónir normalrúmmetra sem ígildir um 2,5 milljónum bensínlítra. Nýlega var endurnýjaður samningur við N1 um kaup á metani og samið við tvo aðila, Metanorku og Olís, um kaup þeirra á umtalsverðu magni af metani. 
 
Því er nauðsynlegt að fjárfesta í búnaði og bættu skipulagi við söfnun og vinnslu á hauggasi í Álfsnesi.  Með uppbyggingunni er stefnt að fullnýtingu á árlegri framleiðslugetu haugsins, miklu rekstraröryggi og góðum gæðum.  Þar sem SORPA er eini framleiðandinn á metani sem ökutækjaeldsneyti á Íslandi verður að hækka söluverð á metani frá SORPU til að framleiðslan standi undir sér.

Til baka