Þjónusta

SORPA bs er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í móttöku og réttri meðhöndlun úrgangs frá bæði íbúum og fyrirtækjum. SORPA hefur væntingar og óskir bæði eigenda og viðskiptavina að leiðarljósi í allri starfsemi fyrirtækisins. Markmið SORPU er að halda áfram að þjóna viðskiptavinum sínum vel og leitast SORPA ávallt við að bæta þjónustu fyrirtækisins við viðskiptavini sína, báðum aðilum til hagsbóta. SORPA er leiðandi fyrirtæki í móttöku sorps og endurvinnslu og með fjölbreyttri þjónustu stuðlar SORPA að jákvæðari upplifun og aukinni meðvitund viðskiptavina um hvernig þeir geti haft áhrif á umhverfið á jákvæðan hátt.