Náms- og fræðsluefni
Litabók með þrautum og fróðleik
Litabókin „Fróðólfur og Freyja á ferðalagi" kom fyrst út í október 2003 en hefur verið endurútgefin tvisvar, síðast í október 2006. Í bókinni er leitast við að svara spurningum eins og:
Er ruslið okkar einhvers virði?
Hvert fer það og hvað verður um það?
Þetta er bók fyrir þá sem hafa gaman af því að lita, leysa þrautir og fræðast. Aftast í bókinni er einnig spil sem kallast vistverndarspilið og öll fjölskyldan getur spilað saman.
Kennurum stendur til boða að fá senda litabókina á tölvutæku formi, sérstaka útgáfu sem inniheldur svör við þrautum og umræðupunkta sem nýtast í kennslu.
Ævintýrið um Sebastían Kassamann
Ævintýrið fjallar um Sebastían Kassmann, lítinn pappaumbúða-mann sem lendir í margvíslegum og jafnvel háskalegum ævintýrum á lífsleið sinni. Sagan er gefin út í tilefni af tíu ára afmæli SORPU (1991–2001) og er bakgrunnur hennar það tímabil róttækra breytinga á sviði úrgangsmála sem fylgdi í kjölfar stofnunar SORPU. Sagan er einkum ætluð yngri viðskiptavinum fyrirtækisins og var hún gefin þeim börnum sem koma í vettvangsferð til SORPU á árinu 2002. Sækja
Sorpið okkar
SORPA, Námsgagnastofnun og Umhverfisráðuneytið gáfu út í byrjun ársins 1998 fræðsluefni um meðhöndlun úrgangs, endurvinnslu og endurnýtingu. Námsefni þetta miðast við þarfir 10 ára nemenda grunnskóla og samanstendur af myndbandi, kennsluforriti, verkefnabók og kennsluleiðbeiningum. Námsefnispakkinn fékk nafnið "Sorpið okkar" og hann er hægt að nálgast hjá Námsgagnastofnun.
Kennaraupplýsingar
Kennaraupplýsingar
Þetta efni er sérstaklega ætlað kennurum sem hyggjast koma í vettvangsferð til SORPU með nemendur sína. Hér má finna gagnlegar upplýsingar um SORPU, flokkun úrgangs, endurnýtingu, umhverfið og neytendur, og verkefni fyrir nemendur svo eitthvað sé nefnt. Efnið var síðast uppfært í janúar 2009.
Sækja
Skráningaeyðublað - Excel
Hér má nálgast skráningaeyðublað vegna verkefnis á blaðsíðu 28 í kennaraupplýsingum. Skrá skal magn úrgangs sem myndast í skólastofunni (sjá verkefni). Eyðublaðið er Excel-skjal.
Sækja
Þessi síða var síðast uppfærð þann 30. júní 2010









