Fræðsla

SORPA býður upp á margskonar fræðslu og upplýsingaþjónustu og hér fer fram kynning á þessum þætti í starfsemi fyrirtækisins. Helstu atriði eru:

  • Vettvangsferðir grunnskólabarna
  • Fræðsla fyrir nemendur vinnuskóla á eigandasvæði SORPU
  • Heimsóknir leikskólanema
  • Almannatengsl
  • Náms- og fræðsluefni

Fræðsla gegnir veigamiklu hlutverki þegar kemur að umhverfismálum. SORPA leggur sitt af mörkum með því að bjóða upp á fræðslu þar sem fjallað er um umhverfissjónarmið við úrgangsmeðhöndlun. Markmiðið er, að þeir sem fræðsluna hljóta, fái tilfinningu fyrir því hvernig þeir geti orðið ábyrgir og vistvænir neytendur. Í fræðslunni er skoðað hvernig hægt er að lágmarka úrgang sem verður til hjá hverjum og einum og hvernig má nýta það hráefni sem felst í úrgangi með því að flokka og skila til endurnýtingar. Á hverju ári koma um 2500 einstaklingar á öllum aldri í slíka fræðslu og er stærsti hópurinn nemendur grunnskóla.

Tímapantanir

Kennurum sem hafa áhuga á að koma með nemendur í vettvangsferð er bent á að hafa samband við Dóru Sif Sigurðardóttur fræðslufulltrúa SORPU í síma 520 2200.