Fræðsla og umhverfismál
SORPA leggur mikla áherslu á umhverfis- og fræðslumál. Árlega eru gerðir útreikningar yfir magn úrgangs sem farið hefur til endurvinnslu eða endurnýtingar. Eins hversu miklu magni spilliefna hefur verið eytt á viðurkenndan hátt og hvernig sá úrgangur sem hefur verið urðaður getur nýst með þekkingu og tækni sem SORPA er frumkvöðull að hér á landi. SORPA innleiddi tækni til vinnslu og nýtingu á metangasi úr urðunarsvæðinu og eins gerð jarðvegsbætis (MOLTU) úr garðaúrgandi. Efnamóttaka SORPU tók til starfa árið 1991 og hefur hún séð um að farga spilliefnum á viðurkenndan hátt en talsverð aukning varð á innkomu spilliefna árið 1997 en ný spilliefnalöggjöf tók gildi 1996. Daglega er flokkaður allur úrgang sem fellur til hjá fyrirtækinu einnig er haldið nákvæmt efnisbókhald yfir hráefni og orku sem notuð eru í starfssemi fyrirtækisins. Þessu verkefni er sinnt af kappi allan ársins hring til að tryggja að hægt sé að veita eftirlitsaðilum, stofnunum og almenningi gagnlegar upplýsingar um það hvernig umhverfismálum er háttað hjá SORPU. Grænt bókhald er gefið út í ársskýrslu SORPU.
Undanfarin ár hefur eftirspurn eftir fræðslu um starfsemi SORPU aukist gríðarlega. Markmiðið með fræðslunni er að fólk fái tilfinningu fyrir því hvernig þeir geti orðið ábyrgir og vistvænir neytendur. Í fræðslunni er skoðað hvernig hægt er að minnka úrgang sem verður til hjá hverjum og einum og hvernig má nýta það hráefni sem felst í úrgangi með því að flokka og skila til endurnýtingar. Með þessu vill SORPA auka meðvitund fólks um eigin neysluvenjur og vekja þá til umhugsunar um hvernig þeir geti haft áhrif á jákvæðan hátt.













