Fimm flokkar í eina tunnu!
Hvað er Blátunna?
www.blatunna.is
Blátunnan er blá að lit til aðgreiningar frá orkutunnunni sem er grá. Í Blátunnuna á að setja allan pappírsúrgang og er innihaldið selt úr landi til endurvinnslu í pappírsiðnaði.
SORPA flokkar bylgjupappa vélrænt frá öðrum pappír til að hámarka virði efnisins. Blátunnan er aukin þjónusta við íbúa sveitafélagsins.
Ávinningur af Blátunnu
Að flokka pappír og pappa frá heimilisúrgangi er spor í átt að sjálfbærni fyrir samfélagið ásamt því að spara umtalsverða fjármuni. Pappi og pappír er hráefni í vörur eins og salernispappír og eldhúsrúllur. Urðun á pappír er því tvímælalaust sóun á hráefni og spilling á landssvæði.
Hvað MÁ fara í Blátunnu?
Allur pappír og pappi er endurvinnanlegur og á að fara laus í tunnuna, engir plastpokar, ekkert aukarusl!
- Auglýsingapóstur
- Bylgjupappi og pítsukassar
- Dagblöð og tímarit
- Eggjabakkar
- Fernur
- Umbúðir úr sléttum pappa
- Morgunkornspakkar
- Pakkningar af matvælum, s.s. kexi og pasta
- Prentpappír og umslög
Pressið umbúðir vel saman, þannig fer minna fyrir þeim í tunnunni. Það kostar að flytja loft.
Aðskotahlutir rýra endurvinnslugildi pappírsins.
Tveir flokkar í eina tunnu!
Hvað er orkutunna?
Orkutunnan er gamla gráa tunnan. Í hana má setja allan heimilisúrgang og málma í lausu.
Ökutækjaeldsneyti úr ruslinu þínu
Við niðurbrot lífrænna efna, s.s. matarleifa, losnar umtalsverð orka. SORPA vinnur orkuna úr sorphaugnum og framleiðir vistvæna ökutækjaeldsneytið metan. Árið 2011 varð til metan sem samsvarar 2 milljónum bensínlítra og nýttist á um 1000 ökutæki. Grátunnan er því réttnefnd orkutunna.
Heimajarðgerð þar sem endurvinnslan fer fram í eigin garði og afurðin nýtist þar er sennilega umhverfisvænsta leiðin til þess að endurvinna lífrænan úrgang. Næstbesti kosturinn til að endurvinna lífrænan úrgang í dag er gasvinnslan!
Vélræn flokkun á málmum
Hjá SORPU eru málmar flokkaðir vélrænt frá öðrum úrgangi úr orkutunnunni og þeim komið til endurvinnslu. Þannig bjargast verðmæti og dregið er úr urðun.
ATH: Allir málmar lausir í tunnuna!
Engar rafhlöður, spilliefni eða raftæki í tunnuna. Skilið því á endurvinnslustöðvar SORPU.













