SORPA

SORPA bs
Gylfaflöt 5
112 Reykjavík
Sími: 520 2200
Fax: 520 2209
Netfang:
sorpa@sorpa.is

Fyrirtækið er skráð undir nafninu SORPA bs í fyrirtækjaskrá og þjóðskrá.
Kennitala fyrirtækisins er 510588-1189
Virðisaukaskattsnúmer SORPU 15528

Hlutverk

Í stofnsamningi SORPU bs. kemur fram að tilgangur byggðasamlagsins er að annast meðhöndlun úrgangs sbr. lög nr. 55/2003 fyrir sjö sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, sem öll eru stofnaðilar að því. Hér má skoða stofnsamning SORPU bs.

SORPA er byggðasamlag í eigu sveitarfélaganna sjö á höfuðborgarsvæðinu; Reykjavík, Hafnarfjörður, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær, Garðabær og Álftanes.
Hér má skoða staðsetningu starfsstöðva SORPU á korti.

Starfsleyfi

SORPA er starfsleyfisskylt fyrirtæki. Starfsleyfi er veitt í samræmi við ákvæði 20. greinar reglugerðar nr. 785/1999 um atvinnustarfsemi sem getur haft í för með sér mengun, samanber lög nr. 7/1998, um hollustuhætti og mengunarvarnir. Starfsleyfi nær til staðsetningar, eðli og umsvifa starfseminnar.

Starfsleyfisgjafi  og eftirlitsaðili fyrir móttöku og flokkunarstöðina í Gufunesi er Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur og fyrir urðunarstaðinn í Álfsnesi er það Umhverfisstofnun.

Starfsleyfi móttöku- og flokkunarstöð í Gufunesi

Starfsleyfi urðunarstaðar í Álfsnesi

Starfsleyfi og eftirlit með endurvinnslustöðvum SORPU veita:
Í Reykjavík: Umhverfis- og samgöngusvið Reykjavíkur.
Í Kópavogi og Garðabæ: Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis.
Í Mosfellsbæ: Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis.


Fyrirvari um tölvupóstsamskipti
Fyrirvari um tölvupóstsamskipti

Þessi síða var síðast uppfærð þann 18. apríl 2013