Tilkynning um lyktarmengun vegna urðunarstaðar SORPU í Álfsnesi.

Þetta innfyllingarform er ætlað að auðvelda íbúum að tilkynna um lyktarmengun vegna urðunarstaðar í Álfsnesi. Tilkynningin berst SORPU sem gefur ítarlegri skýrslu til stjórnar SORPU, Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og kjörnum fulltrúum Mosfellsbæjar.



Sláðu inn textann úr myndinni fyrir ofan
Er myndin óskýr? Smelltu hér til að búa til nýja mynd
Fylla verður út alla reiti merkta með *

Í framhaldi af fundi með íbúasamtökum Leirvogstungu myndaðist samskiptavettvangur við SORPU vegna lyktarmengunar í hverfinu. SORPA tekur allar ábendingar og kvartanir alvarlega og er þegar búin að hrinda af stað verkefnum til að koma til móts við íbúa. Viljum við því hvetja íbúa Leirvogstungu að halda áfram að láta okkur vita um lykt í þeirra nágrenni og þá gjarnan dagsetningu og tíma sem mun í framhaldinu nýtast okkur við úrlausn vandans.

Allar nánari upplýsingar veitir Karen Hulda Kristjánsdóttir
netfang: karenhulda.k@sorpa.is, sími: 520 2200

Aðrar upplýsingar um Lyktarverkefnið í Álfsnesi