Urðunarstaður

Afgreiðslutími er frá 08:00 til 17:00 alla virka daga og 08:00-12:00 á laugardögum.

Urðunarstaður SORPU í Álfsnesi er stærsti og þróaðasti urðunarstaður landsins.  Þangað er fluttur baggaður úrgangur til urðunar sem og ýmis annar úrgangur til endurvinnslu, t.d. steinefni.

Bifreiðaeldsneyti úr sorpi

Í sorphaugum myndast hauggas sem er blanda af koltvísýringi og metani við niðurbrot lífræns efnis.  metanið í hauggasinu er orkuríkt en einnig gróðurhúsalofttegund sem er 21 sinni áhrifameiri en koltvísýringur.

Í samræmi við umhverfisstefnu fyrirtækisins er hauggasi safnað, það hreinsað og notað sem bifreiðaeldsneyti og er Álfsnes eini staðurinn í heiminum þar sem slíkt er gert.  Aðferðin er jafnframt viðurkennt af Umhverfisstofnun sem liður í að draga úr urðun lífræns úrgangs og auka hlutfall endurvinnslu.  Árið 2011 jafngilti eldsneytisframleiðslan um 1,5 milljón bensínlítrum.

Stöðugar umbætur

Sífellt er leitað betri aðferða við rekstur urðunarstaðar og meðhöndlun úrgangs.  Í desember 2011 var til að mynda tekin í notkun ný móttaka fyrir lyktarsterkan úrgang.  Með því er komið til móts við þörf á bættri aðstöðu fyrir viðskiptavini og starfsmenn ásamt því að dreifing lyktarefna frá urðunarstaðnum minnkar.  Við þetta næst jafnframt nákvæmara eftirlit á innihaldi farma og aukin skilvirkni.

Móttaka úrgangs

  1. Þegar komið er á urðunarstað SORPU er fyrst farið yfir vigt þar sem starfsmaður urðunarstaðar tekur á móti viðskiptavini.
  2. Viðskiptavini ber að veita upplýsingar um eðli og uppruna úrgangs.
  3. Starfsmaður SORPU fylgir viðskiptavini á losunarstað og staðfestir flokkun.
  4. Á leiðinni út er aftur farið yfir vigt og gengið frá afgreiðslu.

Viðskiptavinir greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr/kg), samkvæmt gjaldskrá.  Gjaldskrá urðunarstaðar má finna hér.

Sérstakt álagsgjald er lagt á ef úrgangur og/eða afhending er ekki í samræmi við móttökuskilyrði.

Viðskiptavinum sem eru í reglulegum viðskiptum við SORPU er bent á að hægt er að sækja um viðskiptakort hér.


Í Álfsnesi vinna að jafnaði 9 manns og má skipta starfseminni í fjóra megin hluta:

URÐUN
MOLTUGERÐ
GASSÖFNUN
LYKTARVERKEFNI





Þessi síða var síðast uppfærð þann 04. janúar 2013