Móttöku- og flokkunarstöðin í Gufunesi
Afgreiðslutími er frá 7.30-17.00 alla virka daga. sjá á korti
Opið er á laugardögum frá 8:00-11:00 AÐEINS fyrir viðskiptavini með viðskiptakort.
Í móttöku- og flokkunarstöð SORPU er úrgangur meðhöndlaður og honum komið í endurnýtingu eða förgun. Hagstæðara er fyrir viðskiptavini að skila flokkuðum úrgangi en vönduð flokkun leiðir til betri nýtingar á hráefnum og stuðlar að bættu umhverfi.
Endurheimt málma úr úrgangi
Grófur úrgangur og blandaður heimilisúrgangur eru hakkaðir í móttökustöð svo hægt sé að endurheimta málma úr úrgangi með vélrænni flokkun og bjarga þannig verðmætum frá urðun. Slík vinnsla er einsdæmi á Íslandi og leiðir jafnframt til enn frekari rúmmálsminnkunar við pressun og böggun úrgangs og gerir flutning og urðum hagkvæmari.
Leiðandi í endurvinnslu pappírs
SORPA hefur ávallt lagt áherslu á að leita skynsamlegustu leiða í flokkun efna til endurvinnslu, með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi. í tuttugu ára samstarfi við eitt stærsta fyrirtæki í Evrópu á sviði endurvinnslu pappírsefna, IL-Recycling í Gautaborg, hefur SORPA innleitt nýja aðferð sem felst í að safna saman öllum pappír, dagblöðum, fernum, sléttum pappa og bylgjupappa og flokka síðan með vélrænum hætti. Þannig næst betri flokkun, það er þægilegra fyrir notendur og ódýrara fyrir almenning.
Móttaka úrgangs
- Farið á innvigt við móttöku- og flokkunarstöð SORPU í Gufunesi. Vigtarhlið opnast sjálfvirkt fyrir viðskiptavini með viðskiptakort, en aðrir fá tímabundið viðskiptakort í lúgu vigtarhúss.
- Viðskiptavinur fer að hurð 3 þar sem starfsmaður SORPU tekur á móti viðskiptakortinu.
- Viðskiptavinur skal veita upplýsingar um uppruna og eðli úrgangs og staðfestir starfsmaður í móttöku- og flokkunarstöð skráninguna.
- Farið á aðra hvora vigtina á leið út. Hliðið opnast sjálfvirkt eftir lestur viðskiptakorts. Viðskiptavinir með tímabundið viðskiptakort fara á vigt næst vigtarhúsi og ganga frá afgreiðslu.
Viðskiptavinir greiða fyrir úrgang eftir þyngd (kr/kg), samkvæmt gjaldskrá. Gjaldskrá móttöku- og flokkunarstöðvar er að finna hér.
Viðskiptavinum sem eru í reglulegum viðskiptum við SORPU er bent á að hægt er að sækja um viðskiptakort hér.
Þessi síða var síðast uppfærð þann 04. janúar 2013













