Pappírsfjallið, magn pappírs á heimili

Pappírsfjallið
Í lok árs 2002 fóru starfsmenn hjá SORPU, Sorpstöð Suðurlands og Endurvinnslunni á Akureyri í samstarf um mælingar á pappír sem berst inn á heimili landsmanna. Verkefnið hlaut nafnið „Pappírfjallið“ og var markmiðið að fá skýra hugmynd um hvaða pappír væri að berast og í hvaða magni og þannig nálgast forsendur til útreikninga á m.a. hversu stórt hlutfall fer til endurvinnslu. Einnig var kostnaður sveitarfélaganna vegna förgunar pappírs skoðaður. Mælingar stóðu yfir frá 1.1. til 31.12. 2003 og tóku 12 heimili þátt í mælingum. Sjö þeirra voru á höfuðborgarsvæðinu, þrjú á Norðurlandi og tvö á Suðurlandi.

Í skýrslunni er meðal annars fjallað um:
  • Magn og samsetningu óumbeðins pappírs
  • CO2 sparnað við endurvinnslu pappírs
  • Endurvinnslufarveg pappírs
  • Kostnað sveitarfélaga vegna förgunar/endurvinnslu pappírs
  • Úrvinnslugjald
0
Sækja